Skilaboðaskjóðan
HHS0103 - tíminn 09.02.12 fellur niður vegna veikinda

Tíminn í HHS0103 sem vera átti i dag, hefur verið færður yfir til 16. febrúar frá kl. 10:00 - 11:40 í stofu M201


LFF0202-tíminn 10.02.12 færður til 17.02.12

Tíminn í LFF0202  - Líffærafræði II sem er á föstudaginn 10. febrúar 8:10 - 9:50, hefur verið færður yfir á föstudaginn 17. febrúar kl. 10:00 - 11:40.


Málstofa meistaranema í kennaradeild

Málstofa meistaranema í framhaldsbraut kennaradeildar fer fram mánudaginn 13. febrúar nk. og hefst kl. 13:30 Í stofu L202.

Þið eruð eindregið hvött til að mæta og gefa samnemendum ykkar góð ráð og ábendingar ásamt því að undirbúa eigin málstofu.


Próftafla vormisseris
Próftafla vormisseris hefur verið birt á Stefaníu.

  Athugið að um endanlega próftöflu er að ræða. Vegna athugasemda sem bárust þurfti að breyta próftöflunni umtalsvert frá upprunalegum drögum. Hægt er að skoða próftöfluna í heild hér.


Athugið...Nemendur sem vilja skipta um prófstað
Nú er mögulegt að breyta um prófstað vormisseris með rafrænu eyðublaði sem finna má í „Mín Stefanía“.

Þessi möguleiki stendur nemendum til boða til 10. apríl, en eftir þann dag verður ekki hægt að skipta um próftökustað.  Athugið að með breytingu færir nemandi öll próf í sinni próftöflu á nýjan stað.  Nemendum með sérúrræði er bent á að ræða við námsráðgjafa áður en skipt er um stað, því ekki er víst að hægt verði koma til móts við þarfir þeirra á nýjum prófstað.
Athugið að breyttur próftökustaður verður uppfærður í Stefaníunni á nokkurra daga fresti.


Meira...
Kennaradeild - lotur nemenda í fjarnámi (sjá stundaskrá)
Kennt á Akureyri

Lota 2. ár fjarnám: Yngsta stig og miðstig

23. - 27. janúar 2012

19. - 23. mars 2012

Lota 3. ár fjarnám: Yngsta stig, miðstig og efsta stig

20. - 24. febrúar 2012

Lota 4. ár leikskólabraut fjarnám

13. - 16. febrúar 2012


V2012 Lotur á heilbrigðisvísindasviði - framhaldsnám

Vormisseri 2012 - staðlotur
Lota 1 16.-21. janúar
Lota 2 13.-18. febrúar
Lota 3 12.-17. mars
Lota 4 23.-28. apríl


V2012 Lotur á heilbrigðisvísindasviði - iðjuþjálfun

Vormisseri 2012 - staðlotur
1. ár 16. - 20. janúar og 12. - 16. mars
2. ár 20. - 24. febrúar
3. ár 16. - 20. janúar og 26. - 31. mars (ath. má - lau)
4. ár 12. - 16. mars
Vormisseri 2012- vettvangsnám
1.ár
- 26. - 30. mars, vettvangsheimsókn
2. ár - 5. - 30. mars, vettvangsnám I (4 vikur)
4. ár - 4. janúar - 22. febrúar, vettvangsnám IV (7 1/2 vikur)


V2012 Lotur á heilbrigðisvísindasviði - hjúkrun

Vormisseri 2012- staðlotur
1. ár
19. - 28. mars(Verkleg kennsla í HJÚ0204, EFN0102 og LÍE0105)
2. ár 6. - 17. febrúar
3. ár 16. - 20. apríl
4. ár 26. - 30. mars
Vormisseri 2012 - klínískt nám
1. ár
11. apríl (mi)- 25. apríl(HJÚ0204)
2. ár 5. mars - 30. mars(HJÚ0406)
3. ár 16. janúar - 24. febrúar(BKS0104, GHJ0105, HJF0104) og 5.-9. mars(ÖHJ0103)
4. ár 4. janúar - 2. mars(BHJ0104, BRÁ0104, HEG0204)


Viðskipta- og raunvísindasvið

 Kennslulotur á Akureyri - vormisseri 2012

Verklegar vikur í auðlindadeild vika 4 (30. janúar - 3. febrúar) og vika 9 (27. febrúar -. 2. mars)
Fjarnemadagar í viðskiptadeild 22.-26. febrúar

 


Lota félagsvísindadeildar á vormisseri - 1.ár

Ein lota verður á vormisseri fyrir 1.árið í félagsvísindum. Lotan verður dagana 27. - 29. febrúar samtals 3 dagar. Athugið að nemendur sem eru að taka valnámskeið gætu verið í kennslu á fimmtudeginum 1.mars


Deildarkeppni
Þátttaka í námskeiðsmati
Fræðasvið Hlutfall
 Hug- og félagsvísindasvið 25%
* Taldar eru heildareinkunnir námskeiða

Skilaboðaskjóðan
Nýsköpunarsjóður námsmanna, umsóknarfrestur er til 8. mars

Vakin er athygli á að næsti umsóknarfrestur í Nýsköpunarsjóð námsmanna er til 8. mars 2012. Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Allar nánari upplýsingar um sjóðinn og umsóknir er að finna  á slóðinni http://rannis.is/sjodir/nyskopunarsjodur-namsmanna/.


Málþing - efling sveitarstjórnarstigsins, niðurstöður skýrslu

Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Haldið í samvinnu nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins,
Innanríkisráðuneytisins og Háskólans á Akureyri föstudaginn 10. febrúar. Málþingið stendur frá kl. 11:00 til 15:30 í stofu M101 á Sólborg v/Norðurslóð. Nánar á www.unak.is.


Málstofa auðlindadeildar: Tölfræðileg spá um Heklugos

Föstudaginn 10. febrúar mun Þórir Sigurðsson eðlisfræðingur flytja erindi í málstofu auðlindadeildar undir yfirskriftinni: Tölfræðileg spá um Heklugos. Málstofan hefst kl. 12.10 í stofu M203 á Sólborg. Allir velkomnir. Nánar á www.unak.is.


Skilakassi í mötuneytinu

Settur hefur verið upp skilakassi í mötuneytinu fyrir framan B-gang. Hann er nemendum aðgengilegur allan sólarhringinn og er losaður að morgni virkra daga


Umsóknarfrestur fyrir Erasmus og Nordplus skiptinám/styrki 1. mars 2012

Kæri stúdent

Alþjóðaskrifstofa HA minnir á að umsóknarfrestur í Nordplus og Erasmus skiptinám fyrir skólaárið 2012-13 er 1. mars 2012. Nemendur eru hvattir til að kynna sér möguleika skiptináms inn á síðu alþjóðaskrifstofu: http://www.unak.is/althjodatengsl/page/nemendaskipti en þar er að finna samstarfsskóla HA flokkaða eftir deildum og samstarfsleiðum (Nordplus, Erasmus, North2North annað samstarf). Frekari upplýsingar um Erasmus styrkinn er að finna hér: http://www.unak.is/althjodatengsl/page/erasmus og fyrir Nordplus hér: http://www.unak.is/althjodatengsl/page/nordplus

Nemendur eru hvattir til að hafa samband við alþjóðafulltrúa, 

Rúnar Gunnarsson
runarg@unak.is, 460 8035, skrifstofa A-116

 


Óstaðfestar námskeiðaskráningar fjarlægðar

Þann 29. janúar rann út lokafrestur nemenda til að staðfesta skráningar í námskeið vormisseris með rafrænum hætti. Þeir sem ekki staðfestu verða nú á allra næstu dögum skráðir úr sínum námskeiðum bæði í nemendaskrá og úr Moodle.
Þeir sem gleymdu að staðfesta þurfa að snúa sér til viðkomandi deildarskrifstofu til að lagfæra sín mál.


Myndbandasamkeppni - Erasmus 25 ára 2012
Vegleg peningaverðlaun í boði, 1. verðlaun 150.000!!

Erasmus áætlunin hóf göngu sína árið 1987 og því verður haldið upp á 25 ára afmæli hennar á næsta ári.
Af því tilefni mun bæði framkvæmdastjórn ESB og landskrifstofur Erasmus standa fyrir ýmsum viðburðum næsta vor. Nánari dagskrá verður auglýst í byrjun næsta árs.

Landskrifstofa Erasmus á Íslandi og íslensku háskólarnir hafa af þessu tilefni ákveðið að efna til myndbandasamkeppni meðal fyrrverandi og núverandi Erasmus stúdenta.

Einu skilyrðin eru að myndbandið veki áhuga áhorfandans á Erasmus stúdentaskiptum og lengd þess á að vera 2 til 5 mínútur.
Efnistök geta verið mjög fjölbreytt, t.d.
- myndbrot frá Erasmus dvöl og settar inn skýringar með tali og/eða texta (má setja saman myndbrot frá fleiri en einum stúdent)
- frásögn af því hvernig er að vera í skiptinámi (heimildamyndastíll)
- leikið efni
- ... hvað sem er svo lengi sem það vekur áhuga á Erasmus stúdentaskiptum

1. Verðlaun* = 150.000 kr.
2. Verðlaun* = 75.000 kr.
3. Verðlaun* = 50.000 kr.


Meira...
Bókasafn Háskólans á Akureyri á Facebook
Vekjum athygli á því að bókasafnið hefur opnað

Facebook síðu. Við hvetjum starfsfólk og nemendur að gerast vinir.
Kær kveðja,
bókaverðir


Erasmus starfsnám 2012

Ágæti stúdent

Mig langar að vekja athygli þína á möguleikum á starfsnámi í gegnum Erasmus, t.d. næsta sumar. Ekki þarf að vera samningur á milli heimaskóla og gestastofnunar (fyrirtæki, háskóli, stofnun etc.). Fæstir háskólar hafa komið sér upp formlegum samstarfsaðilum vegna starfsnáms. Stúdentar þurfa því oft að finna gestastofnunina sjálfir en það verður að vera í samráði við heimaskóla.

Töluvert er til af styrkjum fyrir komandi sumar.
Styrkurinn felst í; 500 EUR ferðastyrk og 500 EUR uppihaldsstyrk á mánuði.
Dvölin þarf að vera minnst 3 mánuðir.


Meira...
Styrkir til námsdvalar í Litháen skólaárið 2012-2013
MENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐUNEYTIÐ

Styrkir til námsdvalar í Litháen skólaárið 2012-2013
Stjórnvöld í Litháen bjóða fram styrki handa Íslendingum til háskólanáms eða
rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2012-2013. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum,
fræðimönnum eða kennurum til náms í litháísku eða baltneskum fræðum og eru til 5-10
mánaða.


Meira...
ESN á Akureyri!

 HellOOOoooo

Ert þú alþjóðleg/ur? Skemmtileg/ur? Orkumikil/l dugnaðarforkur? sem þráir að krydda meira upp á háskólalífið með alþjóðlegum krökkum, skipuleggja ferðir, partý o.s.frv.

Eramsus Student Network(ESN) er gríðarstórt félag rekið af kröfugu teymi nemenda í 36 löndum Evrópu. Í þessum 36 löndum eru 390 virkar deildir sem reknar eru útfrá helstu háskólum viðkomandi landa. Við eigum þann heiður að hafa eina deild í Reykjavík sem starfar undir ESN samtökunum, og nefnist hún í ESN-Reykjavík (stofnuð 2007). Nú er kominnn tími til að stækka litla Ísland og ætlum við því að ráðast í það verkefni að opna fleiri ESN deildir á Íslandi.

ESN-Reykjavík leitar að flottum fulltrúum til þess að reka væntanlega deild á Akureyri og á Bifröst. Talandi af reynslu stjórnarmeðlima í Reykjavík þá gefur ESN endalaust mikið af sér. Eftir starf hjá ESN ertu reynslunni ríkari, stækkar vinahópinn margfalt um alla Evrópu og víðar, tungumálanotkun verður sterkari, alþjóðleg reynsla aukin, flottari ferilskrá og einfaldlega endalaust PARTÝ!!!! ;)
 


Meira...
ISLEX - ný íslensk-skandínavísk veforðabók

Á degi íslenskrar tungu var ISLEX, ný veforðabók opnuð við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu. Viðfangsmálið er íslenska og sænska, norskt bókmál, nýnorska og danska eru markmál. ISLEX-orðabókin er fyrsta rafræna orðabókin sem tengir saman mörg norræn mál. Hún hefur að geyma um 50.000 uppflettiorð og þýðingar á þeim. Á vef bókasafnins undir tenglinum Rafræn gögn - Orðabækur er að finna veforðabækur á fleiri tungumálum.


KJR0155F, LOK0155F, BED0112 Lokaverkefni
Til nemenda í kennaradeild vegna lokaverkefna (KJR0155F, LOK0155F og BED0112).

Bragi Guðmundsson (s. 460 8559, netfang: bragi@unak.is)  hefur tekið við umsjón með lokaverkefnum í kennaranáminu, þ.e. KJR0155F, LOK0155F (eldra skipulag) og  BED0112 (nýtt skipulag).

Vinsamlegast snúið ykkur því til hans með mál sem varða lokaverkefnin


Yfirlit dagsins
 (dd.mm.áááá)
 
 Stundaskrá
 Fjarkennsluyfirlit
 
Ýmsir tenglar
Handbók nemenda HA
Upptökur frá nýnemadögum
Vefpósthús HA
Matseðill/Menu
Tölvumál
Námsráðgjöf
Alþjóðasvið
Bókasafn HA
Lesstofur
Verðskrá